|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
ÞORRI
MANNA
|
|
| orðsending til ritstjóra blaða og tímarita |
|
Orðsending til
ritstjóra blaða og tímarita
|
| Efni vefsetursins
er að sjálfsögðu öllum frjálst
að lesa, prenta út til eigin
nota, rannsókna og kennslu án endurgjalds.
En kópíuréttarmerkið © leshús, sem fylgir hverjum texta, þýðir að opinber birting og endursala textans er óheimil nema gerður hafi verið birtingarsamningur við rétthafann. |
Samninginn
má gera á nokkrum mínútum gegnum rafpóst
Að því loknu geta þeir sem birta vilja efni sótt það beint af setrinu. Þannig er blöðum og tímaritum boðið allt efni setursins til birtingar. En verðið er samningsatriði og fer vitaskuld eftir upplagi (eintakafjölda) þess sem kaupir. til baka |
|
Mælst er til þess að
heimildar verði getið ef vitnað er í texta á
setrinu.
|
|
þorgeir
þorgeirson:
um
kvikmyndir
(textar
úr kvikmyndasögu I )
|
|
|
Um bækur og höfunda þeirra |
|
|
|
þorgeir
þorgeirson
kvartett
um kvikmyndir
upphaflega
fjögur útvarpserindi, sem einnig birtust
í
vorhefti "skírnis" árið 1994 -
textarnir eru enn í vinnslu
|
|
Þegar
svokallaðir gagnrýnendur hér eru að fjalla um nýjar
innlendar kvikmyndir verða orð þeirra léttvæg
eins og loftbólur í freyðivíni og leita markvíst
upp á yfirborðið: ... falleg og raunsönn lýsing
... blopp! ... tónlistin er með afbrigðum falleg ... blopp!
... myndatakan falleg ... blopp! ... hugljúft verk ... blopp! ...
gott ... gott og blessað ... blopp! ... blopp!
HIN HELGU VÉ eftir Hrafn Gunnlaugsson er nýjasta afurðin og hefur gengið fyrir tómu húsi í Regnboganum. Í
kynningu er þess getið að handritið
sé byggt á endurminningum
höfundarins um fyrstu unglingsárin og vaknandi kynhvöt
sína. Um það vandmeðfarna efni hefi ég
séð 100 myndir og fáar vel heppnaðar, en 99 þeirra
voru þó betri en þessi.
Nema hvað viðskiptavinir netagerðanna hafa þörf fyrir þorskinn og gestir bíóhúsanna eru sólgnir í frásagnarlist. Þannig koma mannlegar þarfir inn í þetta dæmi. Húmanismi kvikmyndaframleiðslunnar er því ekki sjálfgefinn. Hann leiðir af því að bíóin selja lifandi fólki aðgang að varningnum. Okkur gamlingjunum var kennt að andstæðurnar sem urðu til að móta upphaf kvikmyndasögunnar í Evrópu hafi kristallast í þeim Lumière, sem hafði veruleikann til sölu og Meliés, sem lagði sig eftir hugarfluginu . Síðan fóru þessir tveir andstæðu þættir, trúverðugleikinn og hugarflugið, að takast á og tvinnast saman í framvindu greinarinnar. Og það óvænta í þeirri framvindu var, að trúverðugleikaþátturinn, dokúmentarisminn, veruleikaleitin hefur einmitt orðið til þess að finna hinn eiginlega skáldskap kvikmyndavélarinnar. Allt, sem nefnt hefur verið filmískt er þaðan ættað. Húmanískar erfðir frá bókmenntunum, orðlist úr leikhúsinu og almenn lögmál mannlegrar frásagnar hafa líka mótað aðferðir kvikmyndahöfundanna. En sú aðferðafræði hefur einlægt þurft að laga sig að séreigindum filmunnar, enda hefst líka saga atvinnukvikmyndagerðar víðast hvar á verkum dokúmentarista sem heillast af umhverfi mannsins eins og það er mótað af fólki og störfum þess. Þeir skoða amstur daganna og trúverðugt umhverfi manneskjunnar. Eitt glæstasta skeið dokúmentarismans er kennt við bretann John Grierson. Hann fæddist 1898 og var starfandi eitthvað fram á áttunda áratug þessarar aldar, en blómatími hans var á árunum frá 1930 og fram yfir heimstyrjöldina síðari. Hann stefndi þá til liðs við sig mörgum helstu skáldum kvikmyndavélarinnar og útvegaði þeim fjármuni til að gera kvikmyndir á grundvelli veruleikans með frjálsri aðferð, því Grierson var snillingur í því að safna fjármunum til óháðrar kvikmyndagerðar, bæði frá einkaaðilum og opinberum stofnunum, auk þess sem framleiðsla hans naut verulegrar hylli bíógesta, a.m.k. um tíma. Okkur
gamlingjunum var kennt, að störf Grierson og hans líka
væri undirstaða nútíma
kvikmyndagerðar. Þáttur sem enginn heilvita kvikmyndahöfundur
mætti láta sér fátt um finnast.
Fyrir
nokkru þurfti ég á þessu listaverki að halda
til að sýna það á ráðstefnu
um ímynd Íslands. Ég bað ráðstefnuhaldarann
að fá eintak að láni hjá Kvikmyndasafni
Íslands. En þegar hann snéri sér til safnsins
könnuðust menn að vísu við þessa kvikmynd
kapteins Dam en stofnunin hafði ekkert sýningareintak
af verkinu handbært. Hins vegar lá þessi dýrgripur
þar á vídeómasterbandi, sundurlimaður í
búta, og vandlega tímalengdarmerktur hver bútur,
svo auglýsingastofur ættu sem hægast með
að sækja sér efni til að nota í sjónvarpsauglýsingar.
Grundvöllur dokúmentaristans er annar en grundvöllur auglýsingamannsins. Munurinn liggur í því að sá fyrrnefndi snýr sér að áhorfanda sem hann reiknar með að sé heil manneskja en hinn síðarnefndi stefnir verki sínu að kaupandanum. Kaupandinn er í besta falli eins og hluti af manneskju, en í versta falli einber skrifborðshugmynd sem auglýsandinn hefur búið til og látið inn í heimsmynd sína í stað manneskjunnar. Kaupendur lifa saman í svonefndum markhópum en heilar manneskjur bjuggu til skamms tíma, flestar, í fjölskyldum eða vinahópum. Hver manneskja er að vísu kaupandi rétt á meðan hún seilist í veskið sitt eftir peningaseðli handa seljanda varningsins. Þá stund er hún óskadraumur seljandans. Í þeirri stellingu verður hún skurðgoð auðhyggjunnar. Og hefur smám saman orðið að átrúnaði gjörvalls samfélagsins hér í alræði auglýsinganna. Svona takmörkuð, hagsmunabundin hugmynd um manninn er í fullkominni mótsögn við eldri mannskilning húmanismans. En hefur þó verið lögð til grundvallar allri auglýsingagerð. Er raunar lykillinn að ótrúlegum faglegum árangri þeirra sem vinna í bransanum. Því takmörkun viðfangsefnisins skerpir einbeitinguna strax hjá fólki sem hefur játast undir járnaga þessarar fjarskalega takmörkuðu sýnar á manneskjuna. Auglýsingafólkið getur, með góðum hæfileikum og mikilli vinnu, náð mjög sjáanlegum árangri í fagi sínu. Ekki síst vegna þess að eini mælikvarði þess er peningur, sala, vinsældir og glansandi ímynd. En það færir manni blandna ánægju að horfa upp á þessa sérstöku grein kvikmyndaiðnaðarins blómstra hérlendis á meðan aðrar greinar kvikmyndagerðar eru fjarverandi sumar en aðrar damla um í sljóleika eins og fiskar í fúlum pytti. Það er vitaskuld ánægjulegt að sjá Landann standa sig, jafnvel þó fag hans byggist á brengluðum mannskilningi í andstöðu við grundvöll húmanismans gamla. Því vissulega hljótum við að taka ofan fyrir því að íslenskar auglýsingakvikmyndir meira en standast samkeppni við heiminn á sínu sviði. Þær eru margar hreinn veraldartoppur. Okkur gamlingjunum, sem ólumst upp við húmanískan arf bókmennta og annarra lista þykir raunar örvænt um marga hluti nú á dögum, og það eru ekki bara elliglöp. Eitt af því, sem veldur manni áhyggjum, er þetta misvægi í kvikmyndasögu okkar, sem ég var að nefna. Það er eins og höfundarnir nái ekki sambandi við neina þá grundvallarþætti, sem annars staðar hafa veitt húmanisma inn í kvikmyndagerðina. Í fyrsta kaflanum var ég að undrast forakt höfunda hér á handritsgerðinni og feimni þeirra við það að móta kvikmyndasamtöl á íslensku. Í öðrum kaflanum velti ég fyrir mér tómlætinu um mikils verða hefð dokúmentarismans. Það örlitla sem hér er til í þeim anda hefur verið forsmáð, jafnvel limað í sundur handa auglýsingaiðnaðinum að moða úr. Allt þetta má hafa til marks um fjarskalega brenglaðar áherslur kvikmyndafólksins. Nýlega var sú brenglun áréttuð enn, þegar frú Bryndís Schram framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs, sem (undarlegt nokk) einnig stýrir Kvikmyndasafninu, lýsti yfir því í sjónvarpi að það ætti að vera "meiri samvinna milli Útflutningsráðs, Ferðamálaráðs og Kvikmyndasjóðs ... Því eiginlega stefnum við öll að sama marki!". Þannig talar alræði auglýsinganna fyrir munn Kvikmyndasafns Íslands. Þetta er opinber stefna undir kommandó utanríkisráðherrafrúarinnar. Skoðum þá stefnu nánar í samhengi við nýju barnamyndina hans Hrafns, sem í upphafinu varð tilefni þessara hugleiðinga minna um bláþræði íslenskrar kvikmyndasögu. Marklaus,
hundflöt samtöl.
Það
var einmitt 68-kynslóðin svonefnda, sem
fyrst komst í aðstöðu til að hefja atvinnukvikmyndagerð
hér að einhverju marki. Enda hafði ábyrgum
aðilum kynslóðarinnar þar á undan,
stríðsgróðakynslóðarinnar, ekki þótt
rétt að flaustra neitt að setningu kvikmyndalaga
fyrr en dekurbörn hennar komu til starfa. Þróun
atvinnikvikmyndagerðar varð hér því samstiga
hughvarfaskeiði 68-kynslóðarinnar, sem var að turnast
úr kærulausum hippadómi yfir í framagirni
uppanna, búin að átta sig á því
að hún var fædd með silfurskeið ríkisforsjárinnar
í munninum og hlaut því að fylkja sér
um hugsjónir markaðshyggjunnar og alræði auglýsinganna.
Fyrir hendi var tæknileg þjálfun starfsliðs
úr auglýsingabransanum, sem hafði vaxið eins
og skuggaplanta í skjóli Ríkissjónvarpsins.
Þeir
gerðu sér líka grein fyrir því að til
voru form sem höfðu dugað
mannlegri frásögn um langan aldur og voru því
lyklar sögumannsins að sál hlustenda og áhorfenda.
Franco
won all the battles
(Þó Frankó hefði
sigur
Engin
kynslóð getur enst til að kyrja um dánar hugsjónir
afa og ömmu nema rétt fram
yfir tvítugt. Þannig hlaut 68-kynslóðin að
turnast til uppadóms og sjálfsdekurs strax
og hún fór að þreytast á tómleika
þiggjandans. Og þá er eins og þetta fólk
missi allt samband við söguna. Síðan hefur það
í öllu hegðað sér eins og það
væri að byrja nýja mannkynssögu, óviðkomandi
þeirri gömlu.
Mér
hefur orðið tíðrætt um húmanískan
arf kvikmyndasögunnar. En saga
íslenskra kvikmynda var mótuð af fólki
sem lítur á húmanismann sem hvern annan rotinn
haug úr fortíðinni. Og vel sé því,
hafi þetta fólk eitthvað betra og gagnlegra
fram að færa. Áhugaleysi kynslóðarinnar
á gömlu dóti húmanismans hefur leitt af
sér fyrirlitningu á sjálfum undirstöðum
greinarinnar. Trúverðugar umhverfislýsingar og bygging
handrits koma engum við lengur. Og samtöl voru aldrei tíðkuð
í þeim rafvædda gný sem 68-krakkarnir
mótuðust við.
Það
er eins og kvikmyndagerðin hérna sé orðin eldsneytislaus.
Nóvember
1993 - febrúar 1994 - með síðari breytingum -
seinast uppfært:
05.11.1998
|
|
greinargerð
um störf höfunarins að
kvikmyndum
á árunum 1962-72 og
hugleiðingar um aðstöðuna hér og nú
|
Þorgeir
Þorgeirson
Sannindin um
sparifataþjóðina
bréf til Friðriks Rafnssonar,
birtist í TMM 1. hefti 1996
|
|
margt er skrýtið
í kýrhausnum
|
Sæll
Friðrik:
Veistu hvað mér finnst svo undarlegt með frægt fólk? Viðtöl fjölmiðlanna við það snúast aldrei um starfsvið þess og þekkingu, heldur er það látið nota áhrif sín til að gefa yfirlýsingar um hluti, sem það hefur enga þekkingu á. Hefur þú ekki tekið eftir þessu líka? Hver ætli tilgangurinn sé? Ég man til að mynda eftir því, að væri maður staddur í London á sjöunda áratugnum - um það bil sem Bítlarnir voru búnir að vinna sig upp úr rennusteinum Liverpool og orðnir viðurkennd stórskáld - þá var eins víst að fréttamenn hinnar virðulegu stofnunar BBC væru einmitt að ræða alþjóðapólitík eða lögfræði við Ringó Starr eða John Lennon, ef maður opnaði fyrir fréttarás að morgni dags. Og Molbúaviskan um alþjóðastjórnmálin rann upp úr þessum strákum gegnum BBC ofan í bresku þjóðina á meðan hún bruddi morgunbeikonið sitt. En það er nú svo margt skrítið í kýrhausnum. |
|
stórskáldaviðtöl
fjalla ekki um skáldskap
|
Þetta
rifjaðist upp fyrir mér við lestur
3. heftis TMM 1995.
Þar er stórskáldaviðtal við Geirlaug Magnússon,
sem hefur í röskan aldarþriðjung sýnt elju
við að skrifa texta með ójöfnum línum hægra
megin og telst því með réttu orðinn stórskáld,
enda er verið að hafa við hann stórskáldaviðtal,
eins og ég sagði.
Allt er þetta gott og blessað og bara eðlilegt að flestu leyti. Nema hvað stórskáldaviðtöl fjalla helst ekki um skáldskap eða aðra þá hluti, sem skáldin gætu kunnað einhver skil á. Ekki fremur en viðtölin við Bítlana fjölluðu um sérsvið þeirra, popptexta og auglýsingamennsku, á sínum tíma. Hvernig heldur þú að standi á þessu? Allt í einu er stórskáldið frá Sauðárkróki farið að úttala sig um kvikmyndasöguleg atriði. Og skilgreina dálítið sérstakan hóp í íslenskri kvikmyndasögu. Hann segir: "Ég var eitthvað að gæla við að fara út í kvikmyndir. Skorti svo auðvitað framtak ... en gekk með þennan draum og [var] reyndar ekki einn um það á þessum árum. Dagur spyrðir þrjá af okkur, mig, Þorgeir Þorgeirson og Mikael Mikaelsson saman í ágætu kvæði ... og segir þar frá hugsjónamanninum í íslenskri kvikmyndagerð, sem endar með gat á skeifugörninni í staðinn fyrir |
|
engin hugsjónaræpa
|
Nú
væri mér ekkert nema sómi að því að
skilgreinast í hóp með Geirlaugi Magnússyni og
Mikael Mikaelssyni, sem virðast hafa fórnað hreysti iðra
sinna fyrir þá góðu hugsjón að gera
ímyndaðar tímamótakvikmyndir.
En sannleikans vegna hlýt ég að frábiðja mér þennan óvænta heiður. Ekki síst þar sem kvikmyndasaga okkar er að mestu leyti óskráð. Fyrir utan svona Molbúaspeki, vitaskuld. En mín litla þátttaka í kvikmyndagerð var aldrei nein hugsjónaræpa. |
|
hugsjónir
leiða bara til munnræpu
|
Sannleikurinn
er sá, að áratuginn 1962-72 hafði ég kvikmyndagerð
að aðalatvinnu, trúlega fyrstur manna hér á
Íslandi, enda hafði ég lært til þeirra verka,
fyrst hjá franska sjónvarpinu (1956-57) og síðar
(1959-62) í kvikmyndaakademíunni í Prag.
Ekki man ég til þess, að kvikmyndagerð mín færi fram á neinu ímynduðu hugsjónaplani heldur var hún öll í veruleikanum. Fólst í því að rísa á fætur morgun hvern og vinna fram á kvöld við það að rífa upp fjármagn til kvikmyndagerðar og útvega frambærileg nútímatæki til þeirra verka, sem fjármagn aflaðist til. Þvílík störf útheimtu fyrst og fremst raunsæi, enda hefur mér aldrei verið mikið um slepjulegar hugsjónir gefið, hvorki í þessum efnum né öðrum. Hugsjónir leiða bara til munnræpu. Jafnvel mannréttindamál hafa ekki verið mér nein hugsjón, heldur bláber framkvæmd. Og á þessum árum var einmitt gaman að vera niðri á jörðinni. Hver smámynd, sem þá tókst að setja saman með sæmilega frambærilegri atvinnumannstækni var, eðli sínu samkvæmt, tímamótaverk. Sá sem nennti á fætur á morgnana þurfti ekki að láta sig dreyma um neitt. Prófessjónal vinnubrögð voru spennandi nýlunda á þessum árum. Ekki draumur heldur ráðning draums. |
|
þá
var enginn kvikmyndasjóður til
|
Þetta
var nú enginn stóriðja hjá mér.
Allan áratuginn hef ég þó líklega velt fjármagni sem gæti svarað til þrennra eða fernra ævilauna venjulegs gagnfræðaskólakennara, enda var ég einyrki í þessu lengst af. Þá var enginn Kvikmyndasjóður og nær óþekkt að einkakapítal styddi slíka starfsemi (að Flugfélagi Íslands og Loftleiðum þó undanteknum). Bæjarfélög studdu mann stöku sinnum (en þó aldrei til fullkomlega sjálfstæðara verka) eins og ég kem að síðar. En maður varð að vera reiðubúinn til hvers lags þjónustustarfa. Fyrir nánast hvern sem var. Ég gerði sumar fyrstu íslensku auglýsingamyndirnar, kennslumyndir, og ég vann fréttaefni fyrir nánast allar sjónvarpstöðvar í Evrópu nema þá íslensku, og var framleiðandi við gerð tveggja sjónvarpsþátta á vegum finnska sjónvarpsins. Þannig mætti enn lengi telja. Heilt sumar vann ég meir að segja við það að taka myndir í landkynningardellu, sem NATO var þá að gera um Ísland. Það myndefni varð að vísu full raunsætt hjá mér og nýttist aldrei til síns brúks, sem betur fór. En launin fyrir þá vinnu nægðu til að borga kostnaðinn við upptökurnar á kvikmyndinni "Manni og verksmiðju". |
|
vinsamleg tilvitnun
í skrif mín um kvikmyndir
|
Þegar
ég hringdi í þig, með allnokkrum þjósti
að vanda, og vildi koma athugasemdum að í 4. hefti TMM 1995,
sagðir þú, að það væri orðið
um seinan. Og bættir því við, að mér
væri nær að þakka fyrir það, að í
þessu fjórða hefti væri grein um kvikmyndir
þar sem vitnað væri mjög vinsamlega í skrif
mín.
Nema hvað? Eftir 30 ára viðleitni mína til að skrifa af raunsæi um kvikmyndamál gefur sig fram einstaklingur (Þorvarður Árnason), sem virðist nokkurn veginn læs á þá texta. Verst að ég veit bara ekki hverjum ég ætti helst að þakka fyrir þetta. Ef það er þá þakkar vert. Á ég að þakka Guði Almáttugum eða ritstjóra TMM? Eða foreldrum piltsins? Ég vildi því mega biðja þig, Friðrik, að skila þakklæti mínu til hvers/eða hverra, sem þú telur að ég skuldi eitthvert þakklæti í þessu samhengi. |
|
að skoða
umhverfi sitt með kvikmyndavél
|
Annar
greinarhöfundur (Sigurjón Baldur Hafsteinsson) í 4.
hefti TMM 1995 vitnar í Hörð einhvern Bergmann sem fullyrðir
"að umræða Íslendinga um sjónvarp hafi snúist
fyrst og fremst um siðferðileg og þjóðernisleg
sjónarmið en ekki eðli og einkenni þessarar nýju
tækni."
Þar sem SBH leiðréttir ekki missögn Harðar verð ég að ætla, að pilturinn hafi ekki rekist á grein, sem heitir Íslensk menning í spennitreyju; upphaflega erindi, flutt á málfundi sósíalista í mars 1966 og prentað tvívegis, fyrst í 7. hefti Helgafells það sama ár (5000 eintök) og síðan endurskoðuð gerð í Tvíræðum,1994 (1000 eintök). En þar er einmitt bent á nauðsyn þess að menn ræði fleira en siðferði og þjóðerni í þessu samhengi og snúi sér að því að skoða umhverfi sitt með nýrri tækni kvikmynda og sjónvarps. Hver/eða hverjir skyldu nú eiga Sigurjóni Baldri þökk að gjalda fyrir það að halda þeim tillögum mínum utan við sagnfræði sína? Var ég annars búinn að geta þess, hversu margt er skrítið í kýrhausnum? |
|
snemmborin
eftirmæli um dauðvona kvikmyndasögu
|
Á
hinn bóginn vildi ég mega þakka
þér fyrir greinarnar tvær (sem ég nefndi) um
kvikmyndir og um sjónvarp í
4. hefti TMM 1995. Það er ótvíræður
fengur í báðum.
Kannski vegna þess að þær hljóma, hvor með sínum hætti, eins og snemmborin eftirmæli um dauðvona kvikmyndasögu. Og gætu því jafnvel ögrað fleirum en mér. |
|
í framhaldinu
|
af svona eftirmælagreinum um kvikmyndina kemur mér raunar margt í hug, sem tímabært væri að segja nú, úr því ég er líka farinn að gera mig einlægan við þig: |
|
mitt erindi var
við hreinræktaða kvikmynd
|
Upp
úr 1965 voru allir hér á því að sjónvarpið
kæmi í stað kvikmynda.
Nema ég einn. Aldrei hvarflaði að mér að vinna handtak fyrir íslenska sjónvarpið, enda stóð mér það ekki til boða, jafnvel þó ég ynni stöku viðvik fyrir erlendar stöðvar. Mitt erindi var við hreinræktaða kvikmynd, sem ég alltaf hef litið á sem grundvöll síðari fyrirbæra eins og sjónvarps. Og þetta: |
|
frá því
stefnumiði
vék ég
aldrei
|
"Mér
hafði verið kennt að starf Griersons og hans líka væri
undirstöðuþáttur í nútíma kvikmyndagerð.
Þáttur sem enginn heilvita kvikmyndahöfundur mætti
láta sér fátt um finnast.
Enda hafa dugandi kvikmyndaleikstjórar Evrópu til skamms tíma litið á það sem skyldugan þroskaáfanga að gera dokúmentarmyndir" ... sem Þorvarður Árnason vitnar í skrif mín (4. hefti TMM 1995) er ekki einber teoría. Þetta var einmitt stefnuskrá mín þann áratug, sem ég lagði stund á kvikmyndagerð, að gera prófessional myndir um vinnandi fólk að störfum sínum. Frá því stefnumiði vék ég aldrei. |
|
hvorugt aflið
hafði neina burði
|
Ég
sá það að vísu nokkuð snemma að hér
voru hvergi til þau líberölu öfl, sem Grierson hafði
á sínum tíma virkjað til kvikmyndagerðar í
Bretlandi og víðar um heiminn.
Samt reyndi ég bæði við opinbera aðila, félagasamtök og einkakapítalið. Uppskeran varð rýr. Mér tókst að gera fáeinar stuttmyndir, kostaðar af bæjarfélögum, en þeim var efnislega svo þröngur stakkur skorinn, að þær geta engan veginn kallast dokúmentarmyndir í þess orðs fullri merkingu. Þær héldu manni þó í faglegri þjálfun. Áratugs nauð um hugmyndir mínar við forvígismenn atvinnuveganna og stjórnir ýmssa verkalýðsfélaga bar nákvæmlega engan árangur, nema ef telja skyldi þá tvo brandara að ASÍ og Félag iðnrekenda fengu mig til að kvikmynda hátíðasamkomur hjá sér. Forystmennina á málþingi og forystumennina ásamt mökum þeirra í hátíðaskrúða á lokahófi afmælisþinga. Báðir aðilarnir misstu allan áhuga á myndefninu, þegar í ljós kom að sumir höfðu verið góðglaðir á samkomunum. Ekkert þó umfram það sem mannlegt verður að teljast. En mannlegir eiginleikar eins og þeir koma fyrir eiga, að dómi þessara herra, ekkert erindi á filmu. Það er nú mergurinn málsins. Iðnaðarmannahátíðin brann, held ég, með bankahúsinu í Lækjargötunni, en ASÍ hátíðin gæti legið einhvers staðar í drasli. Og má raunar einu gilda. Góðglaðir fyrirmenn eru myndefni, sem ekki breytist mikið, svo alltaf má bæta fyrir glötun þessara búta með nýjum filmubröndurum. Hitt fannst mér öllu ófyndnara hversu viðbrögð forráðamanna hinna andstæðu stétta voru nauðalík. Hvorugt þessara afla hafði burði til að standa undir raunhæfri kvikmyndagerð um vinnandi fólk. |
|
|
Á
þessum árum tókst mér samt að skrapa saman
fé til að kosta upptökur og úrvinnslu á stuttri
kvikmynd, sem ég gerði algjörlega eftir eigin höfði
um efni sem ég nauðaþekkti.
Heim síldarverksmiðjunnar. Það er myndin "Maður og verksmiðja" (10 min 35 mm sv/hv) sem frumsýnd var á hátíðinni í Edínborg árið 1968, við furðu góðar undirtektir. Það ár hélt Edínborg upp á sjötugsafmæli ártúnaðargoðs míns, Johns Griersons, sem er Skoti. Og á hátíðina þetta ár var safnað alveg sérstöku úrvali af nýjum dokúmentarmyndum hvaðanæva úr veröldinni. Mér þótti ærin viðurkenning að því einu að fá að vera með í þeim hópi. Og hafði ekki einu sinni dreymt um það, sem þó gerðist, að "Maður og verksmiðja" yrði flokkuð í úrval þeirra mynda, sem þarna voru sýndar, og send á farandsýninguna "Edinbourgh in Los Angeles" sem Edínborgarmenn sendu víða um Kaliforníu a.m.k. til að státa af gæðum hátíðar sinnar. Eftir þetta linnti ekki beiðnum kvikmyndahátíða um myndina og hún var sýnd allvíða, en gat þó aldrei orðið veruleg söluvara í miðju nýjabrumi litvæðingarinnar. En þetta stappaði í mig stálinu með það, að mér bæri að hrista klafann og gera framvegis sjálfstæð, óháð verk eftir mínu eigin höfði. Hér heima varð þessi mynd fljótlega algjört tabú. Hún þótti til lítils sóma fyrir þjóðina og , aukin heldur, líkleg til að spilla fyrir sölu sjávarafurða. Fréttatilkynningu um ofannefnda viðurkenningu í Edínborg tók þáverandi fréttamaður sjónvarps, Eiður Guðnason, og fleygði í ruslakörfuna að mér ásjáandi með þeim orðum, að "Íslenska sjónvarpið" mundi aldrei taka þátt í því að upphefja "þennan sora". Mér lærðist því fljótlega að fara með viðurkenningar á "Manni og verksmiðju" eins og mannsmorð. |
|
þóttist
vera kominn með frjálsar hendur
|
Í
tæpan áratug hafði ég
verið eins og grár köttur í Menntamálaráðuneytinu
með uppástungur og jafnvel hálfköruð frumvörp
að lögum um kvikmyndasjóði og kvikmyndasafn. En árangurinn
af því nauði sá ekki dagsins ljós fyrr en
ég var löngu hættur kvikmyndagerð og kominn til annarra
starfa.
Loks fékk ég þá íðilgóðu hugmynd að fara og tala við Sjávarútvegsráðherra - og viti menn: upp úr 1970 náði ég samningi við það ráðuneyti um gerð 10 til 20 stuttra mynda (einnar á ári) um hina ýmsu þætti útgerðar og fiskverkunar. Línuveiðar, netaveiðar, síldveiðar, loðnu, trilluútgerð, togararjaxla og landverkafólk í frystihúsum, á fiskreitum, við síldarsöltun ofl. Allt var þetta á prógramminu. Síðar var ætlunin að steypa þessum stuttu myndum (eða öllu heldur pörtum úr þeim) saman í eina heils kvölds mynd um sjávarútveg og fiskverkun eins og það var með sannindum stundað á þeim árum. Þetta var naumur samningur. Ráðuneytið lagði varla til helming kostnaðar og ég þurfti að fjármagna afganginn. En þetta gekk ágætlega með fyrstu myndina, sem var um línuveiðar á vetrarvertíð. Ég fór í flesta róðra á frá áramótum til marsloka, með línubátnum "Freyju" frá Sandgerði og safnaði myndefni. "Freyjan" var að vísu komin til ára sinna, hafði áður heitið Víðir II frá Garði og fært á land meiri síldarafla en nokkurt annað skip í veröldinni. Og mér fannst sómi að henni þó hún væri skörðótt um borðstokkana og hefði ekki verið máluð lengi. Áhöfnin var eins og gengur og gerist, dugnaðarsjómenn, og varla nema einn þeirra með dálítið brogaða fortíð. Það lá vel á mér við þetta verk því ég þóttist vera kominn með frjálsar hendur. |
|
hann sat við
sinn keip og hafði valdið
|
Myndin
sem hét "Róður"
var, að mig minnir, tilbúin um haustið 1972. Og var skömmu
síðar sýnd í sjónvarpi hér við
fjarska vondar undirtektir, sem vonlegt var.
Morgunblaðið brást við hart og lét einhvern undarlega gerðan blaðamann sinn skrifa frétt um það, að Þorgeir Þorgeirson kvikmyndagerðarmaður hefði svikið 750 þúsund krónur út úr Sjávarútvegsráðuneytinu og farið síðan í einn línuróður og tekið einhverja filmuspotta. Þessu var slegið upp með stríðsfréttaletri. Tiltæki Morgunblaðsins er ég ekki að rifja upp í neinni beiskju, heldur vegna þess að sú þjóðsaga hefur gengið hér, að fréttin hafi orðið til þess að ég hætti að fást við kvikmyndagerð. En það er fjærri sanni. Þegar blaðið neitaði að birta þá leiðréttingu, að þriggja mánaða myndatökur og erlendur tæknikostnaður fyrir um það bil milljón krónur lægi að baki verkinu, sem að hálfu leyti væri kostað af framleiðandanum sjálfum, var ljóst að þetta var skipulögð ófrægingarstarfsemi og ekkert að gera nema stefna blaðinu (sem hvorki vildi gefa upp höfumd fréttarinnar né heimildarmenn, nema hvað einhver í blaðstjórninni sagði löngu síðar: "Það er fæðingarhálfviti úr Vestmannaeyjum, sem skrifar þetta"). Blaðið var svo dæmt í Bæjarþingi Reykjavíkur fyrir atvinnuróg. Svo fréttin gerði á endanum engum neitt til nema Morgunblaðinu sjálfu. Og ég var langt kominn með upptökur á næstu mynd, sem hafði vinnuheitið "Für Elise" og fjallaði um starfsfólk í frystihúsi (Bæjarútgerð Reykjavíkur) þegar ráðherra sjávarútvegsmála kallaði mig inn á teppið. Vera má að gauragangurinn út af lygafréttinni hafi orðið til þess að hann fór sjálfur að skoða "Róður". Og
það var þungt í Lúðvík Jósepssyni.
|
|
jafnvel þó
ég væri þá dauður
|
Því
nokkru síðar lagði ég bann við öllum opinberum
sýningum á kvikmyndum eftir mig, nema "Manni og verksmiðju".
Engin hinna myndanna stenst þær kröfur, sem ég
hafði sett verki mínu á þessu sviði. Það
liggja því ljósar ástæður til þess
að ég ákvað að verða "eins ljóðs
höfundur"á þessu sviði.
"Maður og verksmiðja" olli ekki straumhvörfum. Myndin er því vissulega ekkert tímamótaverk. Hún bíður í sínum afkima eins og hvert annað gleymt smáljóð. En þó finnst mér stundum, að þessi stutta mynd gæti orðið tímamótamælir. Tækju menn hana síðar meir í sátt og færu að skoða hana og huga að þeim prinsípum, sem að baki henni liggja, væri það ótvírætt til marks um sinnaskipti. Það væri svo langt frá þeirri afstöðu, sem fólk nú hefur til dokúmentarmynda. Það fyndist mér gaman að frétta, jafnvel þó ég væri þá dauður. |
|
nokkurs konar
eftirmáli
|
Í þriðja bindi Eskju eftir Einar Braga, segir frá því, að Guðmundur Jóhannesson kaupmaður (1887-1961) hafi fyrstur manna hafið kvikmyndasýningar á Eskifirði árið 1922. Þar er þess hins vegar ekki getið, að tveim árum seinna festi Guðmundur kaup á kvikmyndatökuvél, sem hann fékk Sveini Guðmundssyni myndasmið í hendur til þess að taka á kvikmyndir af atvinnulífi staðarins og fleiru. |
| Til
er í fórum Kvikmyndasafns Íslands 3ja sekúndna
myndskeið, sem Sveinn Guðmundsson tók árið 1924
á fiskreitunum á Eskifirði.
Búturinn sýnir vinnuklæddar reitastúlkur flýja í ofvæni undir stórt breiði. Sagan segir, að þær vildu ekki láta festa sig á kvikmynd í vinnugallanum. Sagan segir líka, að myndasmiðnum hafi verið gert það ljóst með ótvíræðum hætti, að vildi hann hafa vinnu af því framvegis að ljósmynda Eskfirðinga í sparifötunum yrði hann að láta af þeim sið að læðast að þeim í vinnutímanum með kvikmyndavélina. Þessar þrjár sekúndur frá sumrinu 1924 eru því einu cinéma vérité upptökurnar, sem til eru af vinnandi fólki á Eskifirði, allt þar til einhvern tíma á sjöunda áratugnum. Ljósmyndir af Eskfirðingum í sparigalla eru hins vegar legíó. |
| Ég
gerði mér ferð um daginn upp á Kvikmyndasafn Íslands
og skoðaði þessar frægu þrjár sekúndur
aftur og aftur.
Og mikill er tjáningarmáttur filmunnar. Á barasta þrem sekúndum hefur Sveini Guðmundssyni myndasmið raunverulega tekist að segja allt það, sem ég er nú að basla við að koma í orð á mörgum blaðsíðum. Vilji
Sigurjón Baldvin Hafsteinsson halda áfram að leita orsakanna
fyrir lítilþægni og heimóttaskap svokallaðra
heimildamyndahöfunda, ráðlegg ég honum að banka
upp á hjá Böðvari Bjarka Péturssyni í
Kvikmyndasafni Íslands og fá þar að skoða þessar
þrjár sekúndur, sem eiga að geta sagt honum allt,
sem segja þarf um málefni kvikmyndanna hér.
janúar 1996
(frumgerðin)
|
|
viðbrögð
lesenda
|
1)
Örlygur Kristfinnsson (Síldarminjasafni Siglufjarðar) segir í bréfi til leshúss 01.03.1999: "Fór að hugsa
um gamlar myndir eftir að ég las "Sannindin
um sparifataþjóðina".
2)
"Seinni
kafli sameiginlegrar migu menningarstéttarinnar fór fram
á sunnudagskvöld, þegar íslenska kvikmynda- og
sjónvarpsakademían veitti Þorgeiri Þorgeirsyni
sérstök verðlaun fyrir framlag sitt [ætti að
vera hans] til
íslenskrar kvikmyndagerðar og kvikmyndamenningar.
Og eiginlega
get ég ekki stillt mig um að spyrja: Frumstætt hvernig?
Á mælikvarða ársins 1968 þegar myndin var
frumsýnd á Edinborgarhátíðinni eða
á mælikvarða nútímans?
Á KThB kannski við það að myndin
er ekki í lit heldur svart/hvítu?
Eigi hann
við framsetningarmáta og hugsun verksins verð ég
að brjóta góða reglu og greina frá
ummælum heiðursgests Edínborgarhátíðarinnar
þetta ár, Johns Grierson, sem lét
þau orð falla eftir að hann sá
myndina, að með henni væri orðið til eitthvað
nýstárlegt (new) öflugt (powerful)
og mikilvægt (important).
25.11.200
|
|
úr
bréfi til forstöðumanns
kvikmyndasafns
íslands
Reykjavík
19.04.2000
Kæri
Sigurjón:
Og veglega bókargjöf (HEIMUR KVIKMYNDANNA) að skilnaði. Ég
fór að ráði þínu og las greinina eftir
Oddnýju Sen á bls 927 strax og ég kom heim.
Hins ber
líka að geta: Mér þykir Oddný Sen ná
fullnægjandi niðurstöðu um kvikmyndaferil minn með
því að vitna réttilega í
ummæli, sem ég lét falla í samtali við hana:
Gleði mín
yfir viðurkenningu hennar [myndarinnar Manns og
verksmiðju] sem fullveðja prófessional og frumlegs verks
á alþjóðlegan skala hefur
alveg skyggt á vonbrigði mín vegna skilningsleysis sveitunga
minna hér heima, sem betur fer.
oftlega
hefur því verið haldið fram (og vissulega með
réttu) að kvikmyndin sé listgrein tuttugustu aldarinnar
enda má styðja þá fullyrðingu mörgum rökum
... engin grein lista er útbreiddari né hefur haft svo gagnger
áhrif á aðrar listgreinar sem svo að
segja hafa orðið að endurskoða alla sína veru -
tækni bæði og innihald - andspænis
þessari sjöundu systur í fjölskyldunni ... kemur
þar til bæði verslunarleg samkeppnisaðstaða og
yfirburðahæfni kvikmyndarinnar til að
tjá einmitt þá vélvæddu tíma sem
við nú lifum ... hér er þó sem jafnan
fólginn háski í yfirburðunum ... kvikmyndin sem
listgrein hefur þurft að gjalda yfirburði sína fullu
verði því þeir eru einkum fólgnir
í þeirri staðreynd að hún er ekki bara listgrein
heldur líka stóriðnaður sem krefst
óhemju fjármagns og verður því daglangt
og árlangt að semja sátt við lögmál peningaharks
og auglýsingaskrums en byggja afkomu sína
á fjöldanum og sveiflum þeirrar tísku sem
hann er jafnan háður ... getur þá
sem oftar þrengt að verðmætum sem varanlegri eru ...
menningarsagan verður ekki til í vitund manna
fyrr en eftir á og þykir varla góður áttaviti
í kapphlaupi framleiðendanna um hylli almennings því
myndirnar frá því í fyrra seljast
ekki lengur
ný tíska heimtar fjármunina í nýja framleiðslu af nýrri gerð en einnig sú tíska verður úrelt fyrr en vonum varir og jafnvel þó hún skapi meistaraverk er það orðið óseljanlegt að enn einu ári liðnu svo hagsmunir menningarsögunnar og hagsmunir kvikmyndaframleiðandans eiga litla samleið og ræðast helst aldrei við nema fyrir milligöngu túlks sá túlkur er kvikmyndasafnarinn aldrei hafa þessar staðreyndir orðið ljósari en á árunum upp úr 1930 eftir tilkomu talmyndanna ... þöglu myndirnar voru út af fyrir sig háþróað listform sem hafði tekist með nokkrum hætti að sætta andstæðurnar og vinna þá almenningshylli sem þurfti til að standa undir fullveðja kvikmyndalist ... svo koma talmyndirnar til sögunnar og gömlu meistaraverkin eru þá strax orðin að hlægilegum forngripum a.m.k. í augum flestra ... nýja tæknin verður aðalatriðið en gömlu stjörnurnar verða aumkunarverð skrípi og myndir án tals og tónlistar óseljanleg vara ... eintökum svoleiðis verka er kastað á haugana til að fá geymslupláss fyrir nýju framleiðsluna ... frumeintökum er brennt í sama tilgangi því skrímsli kvikmyndaframleiðslunnar getur ekki dafnað nema éta sjálft sig jafnharðan ... engum kemur þá við þótt myndirnar sem verið er að brenna séu ómetanlegar heimildir um heilt tímabil menningarsögu okkar ...enn síður ragar það nokkurn mann þó logarnir sleiki frumeintök meistaraverka sem voru afsprengi sérstaks og heilsteypts listaskeiðs sem aldrei kemur aftur ... og þó ...til voru þeir vinir kvikmyndanna sem ekki höfðu fullkomlega látið apast af tækninýjungunum og gerðu sér grein fyrir verðmætunum sem hér voru að fara í glatkistuna ... sumir vildu að vísu snúa hjóli þróunarinnar aftur á bak og biðu þess að hljómmyndatískan gengi yfir svo aftur mætti snúa sér að gerð þögulla mynda ... það var óraunsæ afstaða ... aðrir skynjuðu ofureflið og gerðu sér jafnvel grein fyrir því að bjarga þurfti því sem bjargað varð úr vargskjöftum framvindunnar ... upp úr þessu ástandi varð kvikmyndasafnið franska til í október 1936 að
vísu höfðu menn farið að huga að stofnuninni
strax 1932 ... um það leyti sem heimskreppan valt af fullum þunga
yfir landið ...og mætti það vera skýring þess
að næstu tvö árin liggja þessi mál að
mestu í dvala þó vinir þöglu
myndanna gleymi þeim engan veginn ... því árið
1934 þegar nokkrir kvikmyndagagnrýnendur
hefja máls á því að bjarga þurfi gömlum
meistaraverkum og ómetanlegum heimildum þá
verður það ákall til að þjappa saman umtalsverðum
hópi fólks sem stofnaði kvikmyndaklúbbinn
le cercle du cinèma
sem hafði sýningar klassískra mynda á næstum
trúarlegum samkomum
... sá klúbbur varð undanfari kvikmyndasafns - la
cinèmateque française - þetta
var á elleftu stundu
því framköllunarverkstæðunum hafði þegar
verið gefið leyfi til að fyrirfara hinum dýrmætustu
frumeintökum (negatívum) ... rétt
um sama leyti komu til parísar stofnendur kvikmyndasafnsins
við museum of modern art í new york
sem þá var einmitt í burðarliðnum .. og samband
náðist einnig við british film institute
sem þá var líka nýstofnað ... þannig
urðu til nær samtímis - en þó án vitneskju
hvert um annað - þrjú fyrstu kvikmyndasöfn
í veröldinni ... og höfðu öll varðveislu
og sýningar gamalla listaverka á stefnuskrá
sinni ... þetta var sannarlega engin tilviljun ... öll þrjú
söfnin eru lokaniðurstaða mikillar vakningar
í þessum málum sem fólk var að láta
sér koma við allt frá 1916 til 1930 ... að vísu
voru seinustu kvikmyndaklúbbarnir hættir
störfum - kvikmyndagagnrýni var út af sofnuð - öllu
í raun lokið ... en vakningunni hafði
tekist að gera hugmyndina um kvikmyndasöfnin að veruleika
áður en hún gekk til
nú má víst spyrja hvaða erindi þessar 32 ára gömlu frásagnaslitur eigi við okkur hér sem lengi vel lögðum allan okkar doða og skammdegidrunga í það að leiða hjá okkur listgrein 20. aldarinnar? því
er til að svara að þann 24.07.1968 samþykkti dóms-
og kirkjumálaráðuneytið samkvæmt skipun forseta
íslands stofnskrá fyrir sjálfseignastofnunina
kvikmyndasafnið
sem heitir að vísu svo enn ... og nú árið
2000 hafa verið uppi hugmyndir um að sameina
það arftaka sínum - kvikmyndasafni
íslands - sem væntanlega
mun brátt (með nýjum lögum um starfsemina)
losna undan óviðunandi húsbóndavaldi kvikmyndasjóðs
og öðlast þar með fullt sjálfstæði
sem vitaskuld er lágmarks forsenda fyrir gagnsemi þess í
bráð og lengd ...
|
|
|
|
|